Ný stikla úr kvikmyndinni Dýrinu, eða Lamb á ensku, hefur vakið þónokkra athygli. Stiklan var gefin út í gær en kvikmyndin verður frumsýnd í kvikmyndahúsum 8. október næstkomandi.
Dýrið er íslensk kvikmynd í leikstjórn Valdimars Jóhannssonar, en hún segir frá sauðfjárbændunum Maríu og Ingvari. Saman búa þau í fögrum en afskekktum dal. Þegar dularfull vera fæðist á bóndabænum ákveða þau hjónin að halda henni og ala upp sem sitt eigið afkvæmi. Kjarnaþemu myndarinnar eru að sögn missir og hvernig fólk tekst á við hann.
Myndin var tekin upp í Hörgársveit og eins og áður kom fram leikstýrir Valdimar Jóhannsson myndinni, en hann skrifaði einnig handrit myndarinnar í samvinnu við Sjón. Með aðalhlutverk fer sænska leikkonan Noomi Rapace, sem bjó á Íslandi sem barn og er þetta fyrsta hlutverk hennar á íslensku. Hilmir Snær Guðnason fer þá með einnig með aðalhlutverk í myndinni.
Kvikmyndin vann til verðlauna á kvikmyndahátíðinni í Cannes sem fór fram nú í byrjun júlí og var valin frumlegasta myndin.