Afturendi Pippu Middleton vakti mikla athygli í brúðkaupi Vilhjálms Bretaprins og Katrínar hertogaynju. Þegar Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja giftu sig á laugardaginn lét Pippa lítið fyrir sér fara og leyfði öðrum afturenda að eiga sviðsljósið.
Besta vinkona Meghan, stílistinn Jessica Mulroney, er af mörgum fjölmiðlum sögð hafa átt sína „Pippu-stund“ í brúðkaupinu þar sem hun fylgdi börnum sem tóku þátt í brúðkaupinu upp kirkjutröppurnar.
Samkvæmt heimildum Page Six var Mulroney meðvituð um hvað hún var gera. Mulroney var klædd í fallegan bláan sérsniðin kjól frá Di Carlo Couture sem leyfði afturendanum að njóta sín.
Á galakvöldi í Toronto í síðasta mánuði er ljósmyndari sagður hafa beðið Mulroney að stilla sér upp. „Ég ætla gefa þér smá Pippu,“ á Mulroney að hafa sagt og snúsið sér við svo ljósmyndarinn gæti tekið mynd af rassinum á sér.