Skiptir sér ekki af lífi dóttur sinnar

Anthony Hopkins.
Anthony Hopkins. AFP

Leikarinn Anthony Hopkins virðist vera nokkuð sama um hvort að hann eigi einhver barnabörn. Hinn áttræði leikari vill ekkert af dóttur sinni vita en hin 48 ára gamla Abigail er eina barn hans. 

Express greinir frá útvarpsviðtali við Hopkins þar sem hann var spurður hvort að dóttir hans ætti barn. „Ég hef ekki hugmynd. Fólk hættir saman. Fjölskyldur splundrast og veistu hvað... haltu áfram með líf þitt. Fólk velur. Mér er alveg sama,“ sagði Hopkins. 

Hopkins var var ískaldur í máli þegar kom að dóttur hans og þegar bent var á það stóð ekki á svörum. „Nú, það er vegna þess að lífið er kalt.“

Dóttir Hopkins er eina barn hans en hann átti það með fyrstu eiginkonu sinni. Hopkins gekk út af heimilinu þegar dóttir hans var aðeins 14 mánaða en hann var þá byrjaður með annarri konu.

Samskipti eða réttara sagt lítil samskipti Hopkins og dóttur hans Abigail hafa lengi verið í kastljósi fjölmiðla. Abigail hefur farið í meðferð vegna fíkniefna og var nálægt því að binda enda á líf sitt en ástæðan sagði hún vera slitrótt samband sitt við föður sinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson