Ben Affleck er búinn að vera á Hawaii við æfingar fyrir kvikmynd. Leikarinn vakti mikla athygli og þá sérstaklega fyrir stórt og mikið húðflúr sem nær nánast yfir allt bak hans.
Húðflúrið sem sjá má á mynd hér að neðan er afar tilkomumikið og er af fuglinum fönix í lit. Þetta er reyndar ekki í fyrsta skiptið sem myndir nást af húðflúrinu en fyrir rúmum tveimur árum var hann myndaður með húðflúrið samkvæmt E!.
Húðflúrið vekur ekki síst athygli nú þar sem Affleck sagðist hafa fengið sér húðflúrið fyrir kvikmynd og það væri ekki alvöru. Nú rúmum tveimur árum seinna er hann enn með húðflúrið og litirnir enn mjög sterkir svo það lítur ekki beint út fyrir að húðflúrið sé ekki varanlegt.
A post shared by LOVE RADIO (@loveradioofficial) on Mar 18, 2018 at 11:52am PDT