Lady Gaga mokaði inn peningum

Lady Gaga þénaði vel á tónleikaferðalagi sínu.
Lady Gaga þénaði vel á tónleikaferðalagi sínu. mbl.is/AFP

Þrátt fyrir að Lady Gaga hafi þurft að aflýsa tíu síðustu tónleikunum á tónleikaferðalagi sínu, Joanne World Tour, þénaði hún ágætlega á ferðalaginu. 

Billboard greinir frá því að heildartekjur tónleikaferðalagsins hafi verið 95 milljónir dollara eða um níu og hálfur milljarður íslenskra króna. 841.935 miðar seldust á 49 tónleika. Ferðlagið um Evrópu og Norður-Ameríku hófst í ágúst, síðasti hluti ferðalagsins átti að fara fram síðasta haust en var frestað fram í byrjun janúar. 

Í lok þess árs er áætlað að Gaga hefji tónleikaröð sína í Las Vegas en Gaga gerði tveggja ára samning um tónleika í spilaborginni. 

Lady Gaga.
Lady Gaga. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson