Leikararnir Jada Pinkett Smith og Will Smith hafa verið gift í 20 ár en því hefur lengi verið haldið fram að hjónin séu í opnu hjónabandi. Pinkett Smith þvertók hins vegar fyrir það í þætti Andys Cohens Watch What Happens Live.
Í þættinum fékk Pinkett Smith spurningu úr sal þar sem hún var beðin að segja hvað væri það galnasta sem hún hefði heyrt um fjölskyldu sína. Eftir að hafa hugsað sig um smástund sagði hún að það væri að hún og Will Smith væru í opnu hjónabandi. Pinkett Smith sagði að það væru stanslausar sögusagnir um þetta.