Skam-æðið sem virðist vera í gangi um allan heim hefur nú náð alla leið í sænsku undankeppnina fyrir Eurovision, Melodifestivalen. Úrslitin eru á morgun og mun Eurovision stjarnarn Alexander Rybak vera kynnir ásamt sjónvarpskonunni Clara Henry.
Sænska ríkssjónvarpið hefur nú birt auglýsingu fyrir keppnina annað kvöld þar sem Rybak skellir sér í hlutverk William úr Skam og Henry í hlutverk Nooru.
„Í fyrsta lagi ég er sjálfur með Skam á heilanum. Þetta er ótrúlega góð sería. Síðan fattaði ég að Clara gæti verið góð Noora, þær eru svolítið líkar. Við erum mjög hrifin af ástarsambandi Nooru og William og núna hafa Clara og Alexander skellt sér í hlutverk þeirra,“ er haft eftir Mani Masseged, framkvæmdastjóra Melodifestivalen á vef SVT.