Handboltastjörnurnar Sandra Erlingsdóttir og Daníel Ingason greindu frá því að þau ættu von á sínu fyrsta barni saman í janúar síðastliðnum. Nú hafa þau opinberað kyn barnsins.
Parið birti sameiginlegra færslu á Instagram með skemmtilegum myndum úr kynjaveislu sem þau héldu fyrir sína nánustu. Á myndunum má sjá blátt confetti-skraut rigna yfir þau sem gefur til kynna að þau eigi von á strák.
Sandra og Daníel eru bæði atvinnumenn í handbolta og eru búsett í Þýskalandi þar sem Sandra leikur með Tus Metzingen í þýsku úrvalsdeildinni og Daníel með Balingen. Þau hafa bæði spilað með íslenska landsliðinu á ferli sínum, en undanfarin ár hefur Sandra verið lykilmaður íslenska kvennalandsliðsins og var valin handknattleikskona ársins 2023 af HSÍ.
Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!