Sóley og Níels eiga von á barni

Sól­ey Guðmunds­dótt­ir og Ní­els Thi­baud Girerd.
Sól­ey Guðmunds­dótt­ir og Ní­els Thi­baud Girerd. mbl.is/Kristinn Magnússon

Leikarinn Níels Thi­baud Girerd og Sóley Guðmundsdóttir, starfsmaður á samskiptadeild KSÍ, eiga von á sínu fyrsta barni. Parið greindi frá gleðifréttunum á samfélagsmiðlum. 

„Við verðum þrjú í júlí,“ skrifaði Sóley í sameiginlegri færslu á Instagram. 

Níels, sem er einnig þekktur sem Nilli, er menntaður leikari frá Listaháskóla Íslands. Hann hefur mikinn áhuga á óperu og hefur starfað hjá Íslensku óperunni. Sóley spilaði hins vegar knattspyrnu, er íþróttafræðingur og er með meistarapróf í blaða- og fréttamennsku. Nú starfar hún á samskiptadeild á skrifstofu KSÍ. 

Fjölskylduvefur mbl.is óskar parinu til hamingju. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert