Leikkonan Rooney Mara á von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum Joaquin Phoenix. Opinberaði hún óléttu sína á rauða dregli Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Berlín fyrr í mánuðinum.
Hjónin er sögð í skýjunum með væntanlegan erfingja að því er fram kemur í nýjasta tölublaði Us Weekly. „Mara og Phoenix elska foreldrahlutverkið,“ staðfestir heimildamaður í samtali við tímaritið. „Þau eru gott teymi og hafa mikla ánægju af þessu ferðalagi.“
Fyrir eiga þau tæplega fjögurra ára son, River. Sá er nefndur í höfuðið á bróður Phoenix, leikaranum River Phoenix heitnum. Hann lést árið 1993 úr of stórum lyfjaskammti.
Mara og Phoenix kynntust þegar þau léku saman í kvikmyndinni Her frá árinu 2013. Þau byrjuðu svo saman þegar þau léku í kvikmyndinni Mary Magdalene þremur árum síðar, en þar fóru þau með hlutverk Maríu Magðalenu og Jesú Krists.