Stjarna Precious á von á tvíburum

Heillaóskum hefur rignt yfir hjónin eftir að þau tilkynntu um …
Heillaóskum hefur rignt yfir hjónin eftir að þau tilkynntu um barnalánið. Samsett mynd

Bandaríska leikkonan Gabourey Sidibe, sem hlaut tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir frammistöðu sína í kvikmyndinni Precious, á von á tvíburum. Leikkonan verður 41 árs á árinu. 

Sidibe opinberaði óléttu sína með færslu á Instagram í gærdag. 

„Ég er ófrísk! Okkur fannst alveg kominn tími til að gefa heimilisköttunum smá ábyrgð. Fá þeir hvor um sig eitt barn til að sjá um. Tvö börn, tveir kettir, tvöföld ánægja,“ skrifaði Sidibe þegar hún greindi frá því að von væri á tvíburum. 

Sidibe er gift Brandon Frankel. Parið trúlofaði sig í nóvember 2020 eftir rúmlega árs samband. 

View this post on Instagram

A post shared by Gabby Sidibe (@gabby3shabby)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert