Leifur og Hugrún eiga von á stúlku

Leifur Andri Leifsson og Hugrún Elvarsdóttir eiga von á stúlku.
Leifur Andri Leifsson og Hugrún Elvarsdóttir eiga von á stúlku. Skjáskot/Instagram

Knattspyrnumaðurinn Leifur Andri Leifsson og Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins, eiga von á stúlku.

Parið sagði frá því í janúar að þau ættu von á barni í sameiginlegri færslu á Instagram. Um helgina buðu þau sínum nánustu í sunnudagskaffi með óvæntu ívafi, en þau tilkynntu kynið með því að skera kökusneið sem reyndist vera með bleiku kremi í miðjunni. 

Leifur spilar með HK í Bestu deild karla í knattspyrnu og hefur verið fyrirliði og lykilmaður félagsins um langt árabil. Hugrún starfar sem verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins á samkeppnis- og efnahagssviði og er samhliða því varaformaður og verkefna- og fræðslustjóri hjá félaginu Ungar athafnakonur (UAK). Hugrún spilaði einnig fótbolta í efstu deild í tíu ár, en á ferli sínum lék hún með Stjörnunni, FH og ÍH. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert