Keyptu þrjá gáma af tækjum sem breyta sjó í vatn

Hollensku gámarnir skila 600 tonnum af vatni á sólarhring á …
Hollensku gámarnir skila 600 tonnum af vatni á sólarhring á dag.

Vinnslustöðin hefur fest kaup á þremur gámum með hollenskum tæknibúnaði sem breytir sjó í drykkjarvatn. Ætla má að fyrsti gámurinn komi til landsins milli jóla og nýárs en hinir tveir fljótlega á nýju ári. Tiltölulega einfalt er að tengja búnaðinn við veitukerfi bæjar eða fyrirtækja.

Svo segir í tilkynningu frá Vinnslustöðinni. 

Miklar skemmdir eru á vatnsleiðslunni til Vestmannaeyja, en þær urðu þegar skip í eigu Vinnslustöðvarinnar, Huginn VE, missti akkeri sitt í lögnina. Ekki er unnt að gera við lögnina og þarf að leggja nýja. Það er ekki hægt að gera fyrr en næsta sumar og hefur hættustigi verið lýst yfir í Eyjum vegna stöðunnar.

Skila 1.800 tonnum á sólarhring

Í tilkynningunni frá Vinnslustöðinni segir að sjó sé dælt úr borholum í gegnum öflugt síukerfi sem eingöngu hleypir í gegnum sig vatnssameindinni H2O. Í ferlinu breytist þannig sjór í tandurhreint vatn sem er með öllu laust við bakteríur og veirur. 

Búnaður í hverjum gámi afkastar um 600 tonnum á sólarhring eða alls um 1.800 tonnum ef allar gámar væru virkjaðir samtímis. Full afköst svara með öðrum til þess að fullnægja mestallri vatnsþörf heimila og fyrirtækja í Vestmannaeyjum. Dælurnar í gámunum eru rafdrifnar, nota tiltölulega lítinn straum og teljast því ekki dýrar í rekstri.

Leitaði til um 40 framleiðenda

Willum Andersen, tæknilegur rekstrarstjóri Vinnslustöðvarinnar, hóf ákafa leit að tæknibúnaði þessarar náttúru eftir að vatnsleiðslan til Eyja skemmdist. Willum hafði reyndar skyggnst nokkuð um bekki eftir svona búnaði áður þegar fyrir lá að Vinnslustöðin fengi ekki það vatn sem hún þyrfti til starfsemi sinnar ef og þegar loðnuvertíð hæfist í vetur.

„Síutækni til að hreinsa sjó og gera drykkjarhæfan er vel á mörgum stöðum erlendis, til dæmis í Flórída í Bandaríkjunum, á Arabíuskaga og í mörgum Afríkuríkjum. Ég hafði samband við um 40 framleiðendur búnaðarins um víða veröld en framleiðslutíminn var alls staðar 20 til 40 vikur, sem gekk ekki fyrir okkur. Við þurftum búnaðinn í hvelli!“ er haft eftir Willum. 

Grænt ljóst frá Afríku kom í vikunni

Svo datt hann óvænt ofan á fyrirtæki í Hollandi sem var að græja þrjá gáma fyrir kaupanda í Afríku. 

„Fékk jafnframt að vita að Afríkumennirnir væru hugsanlega reiðubúnir að leyfa Vinnslustöðinni að ganga inn í samning þeirra og bíða sjálfir lengur eftir sínum búnaði. Það reyndist rétt vera. Núna um miðja vikuna fengum við og hollensku framleiðendurnir grænt ljós frá Afríku og í dag var skrifað undir kaupsamninga,“ er haft eftir honum. 

Hann segir hvern gám og nauðsynlegan fylgibúnað kosta að jafnvirði um 90-100 milljónir króna hingað kominn, auk tengikostnaðs.

„Auðvitað liggur fyrir að Vinnslustöðin þarf einungis einn gám til að fullnægja eigin þörfum fyrir vatn. Fyrirtækið heldur að sjálfsögðu einum gámi en mun bjóða Ísfélaginu og Vestmannaeyjabæ að kaupa hina tvo,“ segir Willum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 12.5.24 419,32 kr/kg
Þorskur, slægður 12.5.24 543,06 kr/kg
Ýsa, óslægð 12.5.24 319,32 kr/kg
Ýsa, slægð 12.5.24 163,52 kr/kg
Ufsi, óslægður 12.5.24 146,93 kr/kg
Ufsi, slægður 12.5.24 219,13 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 12.5.24 193,77 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.5.24 Vala HF 5 Grásleppunet
Grásleppa 2.803 kg
Þorskur 31 kg
Rauðmagi 12 kg
Samtals 2.846 kg
11.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.082 kg
Þorskur 648 kg
Steinbítur 352 kg
Keila 62 kg
Ufsi 5 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 2.152 kg
11.5.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.910 kg
Steinbítur 1.951 kg
Ýsa 1.266 kg
Hlýri 116 kg
Skarkoli 66 kg
Langa 40 kg
Ufsi 30 kg
Karfi 1 kg
Samtals 13.380 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 12.5.24 419,32 kr/kg
Þorskur, slægður 12.5.24 543,06 kr/kg
Ýsa, óslægð 12.5.24 319,32 kr/kg
Ýsa, slægð 12.5.24 163,52 kr/kg
Ufsi, óslægður 12.5.24 146,93 kr/kg
Ufsi, slægður 12.5.24 219,13 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 12.5.24 193,77 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.5.24 Vala HF 5 Grásleppunet
Grásleppa 2.803 kg
Þorskur 31 kg
Rauðmagi 12 kg
Samtals 2.846 kg
11.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.082 kg
Þorskur 648 kg
Steinbítur 352 kg
Keila 62 kg
Ufsi 5 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 2.152 kg
11.5.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.910 kg
Steinbítur 1.951 kg
Ýsa 1.266 kg
Hlýri 116 kg
Skarkoli 66 kg
Langa 40 kg
Ufsi 30 kg
Karfi 1 kg
Samtals 13.380 kg

Skoða allar landanir »