Segja Eyjamenn þurfa að borga

HS Veitur segja Vestmannaeyjabæ ekki hafa axlað ábyrgð.
HS Veitur segja Vestmannaeyjabæ ekki hafa axlað ábyrgð. mbl.is/Sigurður Bogi

HS Veitur hafa óskað eftir því að Vestmannaeyjabær leysi til sín vatnsveituna í Vestmannaeyjum.

Í skriflegu svari frá HS Veitum til Morgunblaðsins segir að í kjölfar þess að stórtjón varð á vatnslögninni til Vestmannaeyja 17. nóvember hafi HS Veitur unnið ötullega að því að tryggja að unnt sé að flytja vatn um hana.

Vestmannaeyjabær beri ábyrgð á lögninni og sé skylt að koma að greiðslu kostnaðar við viðgerðirnar. Þá ábyrgð hafi bærinn ekki axlað og vísað henni með öllu frá sér. Í ljósi þeirrar afstöðu sveitarfélagsins sé það mat HS Veitna að rekstrarforsendur vatnsveitunnar séu brostnar.

Vestmannaeyjabær eigandi lagnarinnar

HS Veitur hafa rekið vatnsveituna í Eyjum frá árinu 2002 á grundvelli heimildar í lögum um vatnsveitur sveitarfélaga, en um er að ræða skylduverkefni Vestmannaeyjabæjar samkvæmt fyrrgreindum lögum. Vegna þeirra einstöku aðstæðna sem séu í Eyjum, að flytja þurfi vatn frá landi um neðansjávarlögn, sé hún verulega kostnaðarsöm.

Því sé Vestmannaeyjabær eigandi neðansjávarlagnarinnar milli Landeyjasands og Vestmannaeyja. Samkvæmt samningi HS Veitna við bæjarfélagið reka HS Veitur neðansjávarlögnina sem leigutaki og hafa fyrirframgreitt fyrir afnotin til ársins 2044, sem var áætlaður endingartími lagnarinnar.

Viðræður hefjist fljótlega

Frá því Huginn VE olli stórtjóni á vatnslögninni í nóvember hafi HS Veitur ítrekað lagt áherslu á að Vestmannaeyjabær beri ábyrgð á lögninni sem eigandi og sé þannig skylt að koma að greiðslu kostnaðar við að koma lögninni í nothæft ástand.

Segir að fyrir liggi lögfræðileg álitsgerð sem unnin var fyrir innviðaráðuneytið þar sem komist er að sömu niðurstöðu.

HS Veitur vænta þess að viðræður milli aðila hefjist fljótlega. Auk vatnsveitunnar reka HS Veitur rafveitu og hitaveitu í Vestmannaeyjum.

Tekið er fram að framangreint hafi ekki áhrif á þann rekstur og ekki er gert ráð fyrir fækkun starfsmanna.

Morgunblaðið ræddi við Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar, um miðjan dag í gær og sagðist hún ekki hafa fengið erindi HS Veitna inn á borð til sín.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert