Ný sjávarútvegsstefna fyrir opnum dyrum

Vefsíða á vegum stjórnvalda á að auka gagnsæi stefnumótunar og …
Vefsíða á vegum stjórnvalda á að auka gagnsæi stefnumótunar og endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar. mbl.is/Árni Sæberg

Almenningi verður gert kleift að fylgjast með framvindu stefnumótunar og endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar á nýrri vefsíðu stjórnvalda. Einnig verður þar hægt að koma á framfæri athugasamedum, hugmyndum eða spurningum.

Vefsíðan audlindinokkar.is hefur verið opnuð, segir í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Tilefnið er verkefnið „Auðlindin okkar“ sem Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, kynnti í maí síðastliðnum.

Vegna verkefnisins voru skipaðir fjórir starfshópar og samstarfsnefnd um sjávarútvegsstefnu. Verkefni hópanna er að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum ásamt því að meta þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins.

„Á síðunni má finna upplýsingar um upplegg og tilgang verkefnisins, skipan starfshópa og samráðsnefndar. Einnig er að finna á síðunni yfirgripsmikið gagnasafn um sjávarútveg. Þar má nálgast gögn og fundargerðir starfshópa og samráðsnefndar, ásamt lögum, dómum, frumvörpum, álitum og úrskurðum. Jafnframt er þar að finna yfirlit yfir þá hagaðila sem starfshóparnir hafa rætt við,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að áhersla sé lögð á opna, þverfaglega og gagnsæja nálgun í verkefninu og allir sem hafa áhuga hvattir til að hafa stamband í gegnum síðuna eða netfangið audlindinokkar@mar.is til að koma skoðunum, upplýsingum eða spurningum á framfæri.

Vinna starfshópa og samstarfsnefndar hófst í júní og gert er ráð fyrir að endanleg afurð þeirra vinnu líti ljós sem frumvörp til Alþingis vorið 2024.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Steinbítur 256 kg
Þorskur 256 kg
Ýsa 13 kg
Ufsi 11 kg
Samtals 536 kg
18.5.24 Lundi ÍS 406 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg
18.5.24 Már BA 406 Sjóstöng
Þorskur 498 kg
Samtals 498 kg
18.5.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng
Þorskur 407 kg
Samtals 407 kg
18.5.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng
Þorskur 237 kg
Samtals 237 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Steinbítur 256 kg
Þorskur 256 kg
Ýsa 13 kg
Ufsi 11 kg
Samtals 536 kg
18.5.24 Lundi ÍS 406 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg
18.5.24 Már BA 406 Sjóstöng
Þorskur 498 kg
Samtals 498 kg
18.5.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng
Þorskur 407 kg
Samtals 407 kg
18.5.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng
Þorskur 237 kg
Samtals 237 kg

Skoða allar landanir »