Gamla Stavangerferjan m/s Rogaland hefur endurheimt skipsbjöllu sína. Hún reyndist hafa verið á Íslandi í meira en 40 ár og uppgötvaðist fyrir tilviljun á Byggðasafninu í Görðum á Akranesi. Það var auðsótt mál að fá hana til baka enda þekkja Íslendingar það manna best hve sögulegar minjar geta verið fólki hjartfólgnar.
Bjallan var afhent við hátíðlega athöfn um borð í Rogalandi í höfninni í Stavanger á föstudaginn. Jón Allansson, safnvörður á byggðasafninu, kom færandi hendi með hana og fékk það hlutverk að hringja henni um borð í fyrsta sinn frá 1965. Skipstjórinn Per Øhmann var í skýjunum yfir þessari endurheimt, en undanfarin ár hefur ferjan, sem smíðuð var 1929, verið gerð upp og er nú í skemmtisiglingum. Hún er eitt helsta stolt Stavangerhafnar og var friðlýst af Norsku minjastofnuninni árið 1989.
Jón Allansson segir að fyrirspurn um bjölluna hefði borist safninu fyrir um tveimur árum. Höfðu norskir ferðamenn veitt henni athygli og látið Sjóminjasafnið í Stavanger vita. Þegar heim var komið mundu þeir hins vegar ekki hvað safnið á Íslandi hét og tók nokkurn tíma að finna út úr því. Jón segir að m/s Rogaland hafi verið í ferjusiglingum milli Stavanger og nálægra hafna á árunum 1929 til 1965 á vegum Det Stavangerske Dampskibsselskab AS. Þegar félagið tók nýja ferju, Tungenes, í notkun árið 1966 fylgdi skipsbjallan með. Árið 1974 keypti Skallagrímur hf. á Akranesi Tungenes, gaf skipinu nafnið Akraborg og hafði í siglingum milli Reykjavíkur og Akraness fram til um 1984. Gamla skipsbjallan var áfram um borð en var eingöngu notuð sem lukkugripur að sögn Jóns. Þegar ný Akraborg kom til sögunnar fylgdi bjallan enn með og var um borð til 1998 þegar skipið hætti siglingum. Var hún þá sett í geymslu, en Skallagrímur hf. færði byggðasafninu hana að gjöf árið 2010.
„Þessi skipsbjalla hefur enga skírskotun til Íslands, en við hana eru bundnar sögulegar minningar í Stavenger,“ sagði Jón Allansson, og kvað safnið á Akranesi strax hafa tekið vel í að færa hana norska skipinu að gjöf.