Kristrún og Sturla fánaberar í Peking

Sturla Snær Snorrason verður annar fánaberi Íslands í Peking.
Sturla Snær Snorrason verður annar fánaberi Íslands í Peking. Ljósmynd/SKÍ

Kristrún Guðnadóttir og Sturla Snær Snorrason verða fánaberar Íslands á setningarathöfn Vetrarólympíuleikanna í Peking í Kína sem fer fram á morgun.

Líkt og á Ólympíuleikunum í Tókýó í Japan í sumar verða fánaberar hvers lands tveir, ein kona og einn karl.

Íslenski hópurinn mun að öllum líkindum ganga inn á leikvanginn um miðbik athafnarinnar þar sem inngangan raðast eftir kínverska stafrófinu.

Kristrún keppir í sprettgöngu kvenna á leikunum í ár í fyrsta sinn en Sturla Snær, sem tekur þátt í sínum öðrum Ólympíuleikum keppir í svigi og risasvigi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka