Álftanes og Keflavík eigast við í fjórða leik liðanna í átta liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik á Álftanesi klukkan 19 í kvöld.
Keflavík er yfir í einvíginu, 2:1, en með sigri í kvöld kemst liðið í undanúrslitin.
Keflavík hefur unnið báða leikina í Keflavík nokkuð naumlega, 99:92 og 88:84, en Álftanes fór létt með Keflavík á Álftanesi fyrir átta dögum, 77:56.
Valsmenn og Grindvíkingar eru komnir í undanúrslitin en Njarðvík og Þór Þorlákshöfn leika oddaleik á fimmtudaginn.
Leikur kvöldsins verður í beinni textalýsingu á mbl.is.