Ekki fallegt en það sem þurfti

Maciek Baginski viðurkenndi að sigur hans manna í Njarðvík gegn Þórsurum frá Þorlákshöfn í Dominos-deild karla í körfuknattleik í kvöld, 102:92, hafi ekki verið áferðarfallegur.

Hann var hins vegar ánægður með stigin mikilvægu. Maciek sagði sína menn hafa getað gert margt betur í leiknum og nefndi að halda einbeitningu allan leikinn. Honum fannst lið sitt vera fulldauft og leyft Þórsurum að komast aftur inn í leikinn þegar tækifæri var til að klára þá að fullu. 

Rætt er við Maciek í meðfylgjandi myndskeiði.

Maciek Baginski í leik með Njarðvík.
Maciek Baginski í leik með Njarðvík. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert