Alls ekki sáttur á afmælisdaginn

Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn, fagnaði afmæli sínu í dag en náði hinsvegar ekki að fagna sigri með liði sínu í Dominos-deild karla í körfuknattleik. Einar sagði sína menn hafa tapað fyrir betra liði Njarðvíkinga þetta kvöldið en úrslitin voru 102:92.

Einar var einnig afar ósáttur við leikstjórnanda sinn, Halldór Hermannsson, sem missti stjórn á skapi sínu og var sendur snemma í sturtu af ágætum dómurum leiksins. 

Rætt er við Einar Árna í meðfylgjandi myndskeiði.

Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar.
Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert