Hörð átök á milli nemenda og táragasi beitt

Háskólinn hefur gefið út að hræðileg ofbeldisbrot hafi átt sér …
Háskólinn hefur gefið út að hræðileg ofbeldisbrot hafi átt sér stað á skólalóðinni. AFP/Etienne Lauren

Átök hafa brotist út meðal ólíkra fylkinga nemenda sem mótmæla nú við UCLA-háskólalóðina í bandarísku borginni Los Angeles. 

Annar hópurinn styður Ísrael og hinn Palestínu og hafa hóparnir verið að mótmæla á skólalóðinni undanfarna daga. 

Lögreglan hefur verið kölluð til. 

Togstreita á milli hópana tveggja hefur verið að aukast síðustu daga. Samkvæmt sjónarvottum réðst hópur stuðningsmanna Ísraels á tjaldbúðir stuðningsfólks Palestínu og brutust óeirðirnar út í kjölfarið, að því er BBC greindi frá. 

Í myndskeiði sem birt hef­ur verið á sam­fé­lags­miðlin­um X má sjá mótmælendur ráðast hvor á annan. 

Grímuklæddir mótmælendur komu á svæðið um miðja nótt og reyndu að rífa niður girðingar að tjaldbúðum Palestínustuðningsmanna, að því er dagblaðið Los Angeles Times greindi frá. 

Táragasi hefur verið beitt á svæðinu í kjölfar þess að …
Táragasi hefur verið beitt á svæðinu í kjölfar þess að átökin brutust út. AFP/Etienne Lauren

Dylan Winward, nemandi við háskólann, sagði í samtali við BBC að lögregla hefði notað táragas á svæðinu. Að hans sögn kom hópur stuðningsmanna Ísraels á skólalóðina um klukkan 22 að staðartíma og hóf að henda hlutum í tjaldbúðir stuðningsmanna Palestínu. 

Hópurinn kveikti í flugeldum, kastaði vatnsflöskum og notaði táragas. 

Ráðist var á tjaldbúðir stuðningsmanna Palestínu.
Ráðist var á tjaldbúðir stuðningsmanna Palestínu. AFP/Etienne Lauren

Öryggisteymi á vegum háskólans hefur vaktað svæðið undanfarna daga og passað upp á að ákveðið varnarsvæði sé á milli hópanna tveggja. Öryggisteymið hefur nú dregið sig til baka. 

Háskólayfirvöld hafa sagt að hræðileg ofbeldisbrot hafi átt sér stað á lóð skólans og að kallað hafi verið eftir aðstoð lögreglunnar.

Lögreglan var kölluð á svæðið.
Lögreglan var kölluð á svæðið. AFP/Frederic J. Brown

Lög­regla hef­ur hand­tekið mót­mæl­end­ur í nokkr­um há­skól­um í Banda­ríkj­un­um sök­um þess að þeir hafa neitað að yf­ir­gefa há­skóla­svæðið þar sem mik­il mót­mæli vegna stríðsins á Gasa­svæðinu hafa geisað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert