Góður leikur Martins dugði ekki til

Martin Hermannsson hefur átt mjög gott tímabil.
Martin Hermannsson hefur átt mjög gott tímabil. Ljósmynd/David Henrot

Martin Hermannsson skoraði 15 stig og gaf átta stoðsendingar í 77:69 tapi Charleville gegn Nantes í 8-liða úrslitum frönsku B-deildarinnar í körfubolta í dag. Carleville er úr leik og komið í sumarfrí eftir tapið. 

Charleville tapaði fyrri leik liðanna á föstudaginn var og tapast einvígið 2:0. Martin hefur átt mjög gott tímabil í ár og verið með bestu mönnum deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert