Flottasta markið á HM var brasilískt (myndskeið)

Richarlison skoraði fallegasta markið á HM.
Richarlison skoraði fallegasta markið á HM. AFP/Adrian Dennis

Brasilíski sóknarmaðurinn Richarlison skoraði fallegasta markið á HM í fótbolta í Katar, en greint var frá á Twitter-aðgangi heimsmeistaramótsins.

Markið sem um ræðir var annað mark leikmannsins í 2:0-sigri Brasilíu á Sviss í riðlakeppninni. Hann skoraði þá með afar fallegri bakfallsspyrnu í bláhornið.

Markið fallega má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert