Knattspyrnumaðurinn Erling Haaland svaraði gagnrýni Roy Keane, fyrrverandi fyrirliða Manchester United, eftir leik Manchester City gegn Úlfunum í ensku úrvalsdeildinni en Haaland skoraði fjögur mörk í 5:1 sigri í gær.
Keane sagði að Haaland spilar eins og framherji í C-deild eftir markalaust jafntefli City gegn Arsenal í lok mars og var spurður út í það eftir leikinn í gær.
Trufluðu ummæli Roy Keane þig?
„Mér er alveg sama um þann mann svo allt er í lagi,“ svaraði Haaland en Keane tæklaði faðir hans, Alfie Haaland, illa á sínum tíma í leik Manchester United gegn City.
Erling Haaland really said who tf is Roy Keane 😭 pic.twitter.com/ABC5D2JRI9
— 𝐄𝐑 (@ErlingRoIe) May 5, 2024