Heimskulegt hjá Martínez

Emiliano Martínez fagnaði með furðulegum hætti.
Emiliano Martínez fagnaði með furðulegum hætti. AFP/Kirill Kudryavtsev

Patrick Vieira, franski knattspyrnustjóri Crystal Palace á Englandi, er allt annað en sáttur við hegðun Emiliano Martínez eftir að sá argentínski varð heimsmeistari með þjóð sinni á HM í Katar.

Hegðun markvarðarins vakti athygli og gerði hann ítrekað lítið úr Kylian Mbappé eftir leik, sem og hann virtist sýna óviðeigandi hegðun þegar hann tók við verðlaunum fyrir að vera besti markvörður mótsins.

„Ég held að hegðunin hans hafi skemmt augnablikið fyrir Argentínu. Hann þurfti ekki að haga sér svona. Stundum ræður maður ekki við tilfinningarnar, en þetta var heimskuleg hegðun hjá Martínez,“ sagði Vieira á blaðamannafundi.

Patrick Vieira
Patrick Vieira AFP/Oli Scarff
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert