Pólverjar láta landsliðsþjálfarann fara

Czeslaw Michniewicz er hættur að þjálfa pólska landsliðið.
Czeslaw Michniewicz er hættur að þjálfa pólska landsliðið. AFP/Andrej Isakovic

Czeslaw Michniewicz hættir þjálfun pólska karlalandsliðsins í fótbolta um áramótin, er samningur hans við pólska knattspyrnusambandið rennur út. Hann stýrði Póllandi á HM í Katar.

Michniewicz tók við pólska liðinu í byrjun árs og gerði eins árs samning, sem verður ekki framlengdur. Var pólska knattspyrnusambandið ekki ánægt með frammistöðu liðsins í Katar.

Pólska liðið gerði markalaust jafntefli við Mexíkó, vann 2:0-sigur á Sádi-Arabíu og tapaði 0:2 fyrir Argentínu í riðlakeppninni og fór áfram í 16-liða úrslit. Þar tapaði póslska liðið fyrir því franska, 1:3.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert