Valsmenn þurfa að lyfta bikarnum í Grikklandi

Agnar Smári Jónsson í leik Vals og Minaur Baia Mare …
Agnar Smári Jónsson í leik Vals og Minaur Baia Mare í fyrri leiknum á Hlíðarenda. mbl.is/Óttar

Fyrri úrslitaleikur Vals og Olympiacos frá Grikklandi í úrslitaeinvígi Evrópubikars karla í handknattleik fer fram á Hlíðarenda.

Dregið var í höfuðstöðvum evrópska handknattleikssambandsins í Vín í Austurríki í dag en fyrri úrslitaleikurinn, heimaleikur Vals, fer annaðhvort fram laugardaginn 18. maí eða sunnudaginn 19. maí.

Seinni úrslitaleikurinn fer fram í Grikklandi, 25. eða 26. maí og því ljóst að ef Valsmenn fagna sigri í keppninni mun bikarinn fara á loft í Grikklandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert