FH einum sigri frá úrslitum

Ásbjörn Friðriksson sækir að marki ÍBV.
Ásbjörn Friðriksson sækir að marki ÍBV. Ljósmynd/Sigfús/Gunnar

FH er einum sigri frá úrslitaeinvígi Íslandsmóts karla í handbolta eftir sterkan átta marka útisigur á ÍBV, 36:28, í öðrum leik liðanna í undanúrslitum í Vestmannaeyjum í kvöld.

FH-ingar eru með 2:0-forystu í einvíginu og tryggja sér sæti í úrslitum gegn Val eða Aftureldingu með sigri í þriðja leik á sunnudaginn kemur.

Gestirnir úr FH voru skrefinu á undan stærstan hluta fyrri hálfleiks og var staðan í leikhléi 18:16. FH-ingar voru svo sterkari á lokakaflanum og unnu að lokum sannfærandi sigur.

Aron Pálmarsson átti stórleik fyrir FH og skoraði tíu mörk. Símon Michael Guðjónsson gerði sex. Arnór Viðarsson skoraði sex fyrir ÍBV og Daniel Viera fimm.

ÍBV 28:36 FH opna loka
60. mín. Leonharð Þorgeir Harðarson (FH) á skot í slá
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert