Þjálfari Íslendinganna rekinn

Daníel Þór Ingason í leik með Balingen.
Daníel Þór Ingason í leik með Balingen. Ljósmynd/Balingen

Handknattleiksþjálfarinn Jens Bürkle hefur verið rekinn frá þýska félaginu Balingen. 

Balingen hefur gengið illa í efstu deild þýska handboltans í ár en liðið er í neðsta sæti deildarinnar með 11 stig, átta stigum frá öruggu sæti. 

Í nóvember á síðasta ári var tilkynnt að Bürkle myndi láta af störfum að yfirstandandi tímabili loknu. Vegna slæms gengis gerðist það nú. 

Íslendingarnir Daníel Þór Ingason og Oddur Gretarsson leika með Balingen en sá síðarnefndi gengur til liðs við Þór Akureyri í sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka