Endurkomusigur Noregs í Danmörku

Guro Reiten skoraði bæði mörk Noregs í kvöld.
Guro Reiten skoraði bæði mörk Noregs í kvöld. AFP

Noregur heimsótti Danmörku til Viborg og vann nauman 2:1-sigur þegar liðin mættust í vináttulandsleik í knattspyrnu kvenna í kvöld.

Það blés ekki byrlega fyrir gestina þegar Signe Bruun, sóknarmaður Lyon, kom Dönum yfir áður en ein mínúta var liðin af leiknum.

Skömmu fyrir leikhlé jafnaði Guro Reiten, vængmaður Chelsea, hins vegar metin og staðan því 1:1 í leikhléi.

Reiten var svo aftur á ferðinni snemma í síðari hálfleik og tryggði Norðmönnum þannig sterkan endurkomusigur.

Bæði lið undirbúa sig nú fyrir EM 2022 á Englandi, sem hefst eftir slétta viku.

Noregur er í A-riðli með gestgjöfum Englands, Austurríki og Norður-Írlandi.

Danmörk er í B-riðli með Þýskalandi, Spáni og Finnlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert