Aníta áttunda í Birmingham

Aníta Hinriksdóttir
Aníta Hinriksdóttir mbl.is/Árni Sæberg

Aníta Hinriksdóttir hafnaði í áttunda sæti í 800 metra hlaupi á Demantamóti í frjálsum íþróttum í Birmingham á Englandi í dag. Hún hljóp á 2:03,24 mínútum sem eru rúmum þremur sekúndum frá hennar besta tíma. 

Aníta var í fyrsta sæti þegar skammt var eftir af hlaupinu en hún náði ekki nægilega góðum endaspretti og því fór sem fór. Habitam Alemu frá Eþíópíu vann hlaupið á 1:59,60 mínútu, Lynsey Sharp frá Bretlandi kom þar á eftir á 1:59,91 mínútu og Charlene Lipsey frá Bandaríkjunum varð þriðja á 2:00,97 mínútum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert