Franskir meistarar í tólfta sinn

Kylian Mbappé og Goncalo Ramos fagna marki á laugardag.
Kylian Mbappé og Goncalo Ramos fagna marki á laugardag. AFP/Franck Fife

París SG tryggði sér um helgina franska meistaratitilinn í knattspyrnu karla. Það varð ljóst þegar Monaco, sem er í öðru sæti, tapaði 3:2 fyrir Lyon í gær.

PSG hefur nú alls orðið Frakklandsmeistari tólf sinnum, þar af tíu sinnum á síðustu tólf tímabilum.

PSG gerði jafntefli gegn Le Havre, 3:3, á laugardag en hefði með sigri tryggt sér titilinn.

Jafnteflið kom ekki að sök þar sem Parísarliðið er með 12 stiga forskot á Monaco þegar aðeins þrjár umferðir eru óleiknar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert