Ekki eru allir eins sáttir með Erik ten Hag, knattspyrnustjóra Manchester United, og Simon Stone, íþróttafréttamaður breska ríkisútvarpsins.
„Erik ten Hag má eiga eitt, hann forðast ekki spurningar á blaðamannafundum.
Í dag hefði verið auðvelt fyrir hann að beygja frá spurningum um Alejandro Garnacho og Jadon Sancho, en hann sagði frá báðum málum.
Hvort það hjálpi ten Hag eða ekki veit ég ekki, en sem blaðamaður fagna ég því,“ segir Stone.
Manchester United mætir Coventry í undanúrslitum enska bikarsins á sunnudaginn kemur. Leikurinn verður í beinni textalýsingu á mbl.is.