Þrumufleygur Hollendingsins (myndskeið)

Hollenski miðvörðurinn Micky van de Ven skoraði glæsilegt mark fyrir Tottenham Hotspur þegar liðið vann 3:1-sigur á Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Van de Ven skoraði með sannkölluðum þrumufleyg þegar hann kom Tottenham í 2:1.

Murillo, miðvörður Forest, hafði brotið ísinn með sjálfsmarki fyrir Tottenham áður en Chris Wood jafnaði metin.

Pedro Porro skoraði svo laglegt þriðja mark Tottenham og þar við sat.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert