Dramatískt jöfnunarmark botnliðsins (myndskeið)

Oli McBurnie reyndist hetja Sheffield United þegar hann jafnaði metin gegn Chelsea í 2:2 og tryggði liðinu stig með marki í uppbótartíma þegar liðin áttust við í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Chelsea virtist vera að sigla sigri í höfn þegar McBurnie kom til skjalanna á þriðju mínútu uppbótartíma og sá til þess að liðin skildu jöfn.

Thiago Silva og Noni Madueke komu Chelsea í tvígang í forystu en Jayden Bogle og McBurnie jöfnuðu metin tvívegis.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert