Enn bætist á meiðslalista City

John Stones fer meiddur af vell í gærkvöldi.
John Stones fer meiddur af vell í gærkvöldi. AFP/Glyn Kirk

Enski knattspyrnumaðurinn John Stones, miðvörður Manchester City, fór meiddur af velli í upphafi vináttulandsleiks Englands og Belgíu á Wembley í Lundúnum í gærkvöldi.

Stones hélt um nárann á sér þegar hann fór af velli eftir aðeins níu mínútna leik og því ríkir óvissa um hvort hann geti tekið þátt í stórleik Man. City gegn Arsenal næstkomandi sunnudag.

Áður hafði liðsfélagi hans Kyle Walker haltrað af velli í 0:1-tapi Englands fyrir Brasilíu í vináttulandsleik í síðustu viku.

Óvissa með Akanji

Walker stífnaði aftan í læri en samkvæmt Sky Sports standa vonir til þess að hann verði klár í slaginn á sunnudag.

Þriðji varnarmaðurinn, Manuel Akanji, dró sig þá úr svissneska landsliðshópnum fyrir nýafstaðinn landsleikjaglugga vegna ónefndra meiðsla og er ekki víst hvort hann verði búinn að jafna sig um helgina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert