Vill óvæntan stjóra til Liverpool

Liverpool er eitt stærsta lið Englands.
Liverpool er eitt stærsta lið Englands. AFP/Oli Scarff

Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Glen Johnson stakk upp á óvæntum stjóra til að taka við karlaliði Liverpool eftir að yfirstandandi tímabili lýkur. 

Jürgen Klopp lætur af störfum eftir tímabilið eftir níu farsæl ár þar sem Liverpool hefur unnið flestalla bikara sem í boði eru.

Glen Johnson lék á sínum tíma með Liverpool.
Glen Johnson lék á sínum tíma með Liverpool. AFP

Hefur félagið verið í mikilli leit að næsta stjóra en efstur á óskalista þess er Spánverjinn Xabi Alonso, stjóri Bayer Leverkusen. 

Glen Johnson, sem lék í sex ár með Liverpool, er hins vegar með aðrar hugmyndir og vill að félagið íhugi Gareth Southgate, landsliðsþjálfara Englands. 

Gareth Southgate.
Gareth Southgate. AFP/Paul Ellis
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert