Ungi United-maðurinn byrjar í kvöld

Kobbie Mainoo í sínum fyrsta landsleik með Englandi.
Kobbie Mainoo í sínum fyrsta landsleik með Englandi. AFP/Glyn Kirk

Hinn 18 ára gamli Kobbie Mainoo mun byrja fyrir enska landsliðið í vináttulandsleik þess gegn Belgíu í knattspyrnu í kvöld. 

Enskir miðlar greina frá en mikið er um skakkaföll hjá enska landsliðinu í þessu landsleikjaverkefni. 

Mainoo var valinn í landsliðið í fyrsta sinn fyrir þennan glugga en hann hefur slegið í gegn með Manchester United undanfarna mánuði. 

Kom hann inná gegn Brasilíu á laugardaginn var en mun byrja leikinn í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert