Verður fyrirliði í 50. landsleiknum

Declan Rice.
Declan Rice. AFP/Justin Tallis

Declan Rice mun leiða enska karlalandsliðið í knattspyrnu út á Wembley-leikvanginn annað kvöld er það mætir Belgíu í vináttulandsleik þjóðanna. 

Verður þetta fimmtugasti leikur Rice, sem leikur með Arsenal, fyrir enska landsliðið. 

Rice er algjör lykilmaður hjá Englandi og liði sínu Arsenal sem hann gekk til liðs við á yfir 17 milljarða íslenskra króna síðasta sumar. Þá hefur hann skorað þrjú landsliðsmörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert