Ten Hag ekki rekinn á miðju tímabili

Erik ten Hag verður ekki rekinn á þessu tímabili.
Erik ten Hag verður ekki rekinn á þessu tímabili. AFP/Paul Ellis

Hollenski knattspyrnustjórinn Erik ten Hag verður ekki rekinn frá Manchester United á þessari leiktíð.

Sæti ten Hag er talið heitt og hefur enski landsliðsþjálfarinn Gareth Southgate verið orðaður við stjórastöðuna hjá Manchester-félaginu. Hollendingurinn verður þó stjóri United, út þessa leiktíð hið minnsta.

The Guardian greinir frá. Í frétt enska miðilsins segir að Íslandsvinurinn Sir Jim Ratcliffe, sem sér um knattspyrnutengd erindi hjá félaginu, vilji að ten Hag ljúki tímabilinu áður en ákvörðun verður tekin um framtíð hans í framhaldinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert