Stjarna Arsenal dregur sig úr hópnum

Bukayo Saka verður ekki með enska landsliðinu í næstu leikjum.
Bukayo Saka verður ekki með enska landsliðinu í næstu leikjum. AFP/Justin Tallis

Kantmaðurinn Bukayo Saka, leikmaður Arsenal, hefur dregið sig úr enska landsliðshópnum í fótbolta vegna meiðsla.

Saka hefur ekkert getað æft með enska liðinu síðustu daga og ljóst að hann er ekki leikfær fyrir vináttuleikina gegn Brasilíu og Belgíu.

Fyrsti leikur Arsenal eftir landsleikjahléið er stórleikur gegn Manchester City sunnudaginn 21. mars. Ekki er víst hvort meiðslin ógni þátttöku Saka í þeim leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert