Tottenham vann 3:1-sigur á Newcastle á St. James Park í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og skemmdi þar með aðeins fyrir veisluhöldum heimamanna.
Newcastle var að spila sinn fyrsta leik eftir að félagið var það ríkasta í heimi í kjölfar þess að sádiarabíski krónprinsinn Mohammed bin Salman keypti það á dögunum. Stemningin var af þeim sökum mikil á áhorfendapöllunum og ekki versnaði staðan þegar Callum Wilson kom heimamönnum í forystu með skallamarki strax á annarri mínútu.
Þeir Tanguy Ndombéle, Harry Kane og Son Heung-Min reyndust hins vegar vera gleðispillar er mörk þeirra sneru taflinu við fyrir Tottenham. Allt það helsta má sjá í spilaranum hér að ofan. Mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.