Barry náði afar merkum áfanga

Gareth Barry í leik með Aston Villa gegn Dennis Siim, …
Gareth Barry í leik með Aston Villa gegn Dennis Siim, Björn Daníel Sverrisson og félögum þeirra hjá FH.

Gareth Barry, leikmaður WBA, lék tímamótaleik þegar liðið gerði markalaust jafntefli við West Ham United í fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla í dag.

Barry lék sinn 632. leik í deildinni og jafnaði þar af leiðandi Ryan Giggs á listanum yfir leikjahæstu leikmenn í sögu deildarinnar.

Barry hefur leikið leikina fyrir Aston Villa, Manchester City og Everton. Þá hefur Barry að auki leikið 53 leiki fyrir enska karlalandsliðið í knattspyrnu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka