Gylfi nafngreindur í erlendum fjölmiðlum

Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Everton.
Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Everton. AFP

Erlendir fjölmiðlar eru byrjaðir að nafngreina Gylfa Þór Sigurðsson í greinum þess efnis að hann sé laus allra mála, tæpum tveimur árum eftir að hann var handtekinn vegna gruns um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi.

Miðlar á borð við Nettavisen í Noregi, Tribal Football á Englandi, Bold í Danmörku, Tag 24 í Þýskalandi, Soccernet í Eistlandi, Ilatalehti í Finnlandi og Przegald Sportowy í Póllandi fjalla öll um málið í dag og nafngreina Gylfa.

Stærstu miðlarnir á Englandi hafa þó ekki nafngreint Gylfa, þar sem það yrði lögbrot vegna þess að leikmaðurinn var aldrei ákærður.  

Hér fyrir neðan má sjá fréttir af Gylfa í ofantöldum miðlum.

Ljósmynd/nettavisen.no
Ljósmynd/tribalfootball.com
Ljósmynd/bold.dk
Ljósmynd/tag24.de
Ljósmynd/soccernet.ee
Ljósmynd/przegladsportowy.onet.pl
Ljósmynd/iltalehti.fi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert