Jafnt í Vestmannaeyjum

ÍBV og Grindavík gerðu 1:1-jafntefli á Hásteinsvelli í 7. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í dag.

Þvert gegn gangi leiksins skoraði Grindavík fyrsta markið en það skoraði Rio Hardy eftir að hafa sloppið ein inn fyrir vörn Eyjakvenna.

Caroline Van Slambrouck jafnaði metin fyrir ÍBV í seinni hálfleik með góðu skallamarki. 1:1 lokaniðurstaðan og gera þessi úrslit lítið fyrir bæði lið sem eru um miðja deild.

ÍBV 1:1 Grindavík opna loka
90. mín. Dröfn Einarsdóttir (Grindavík) fer af velli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert