Reglulega birtum við lista yfir best klæddu konur landsins. Í ár var leitað til lesenda Smartlands og tilnefndu þeir þær sem komust á lista. Eins og sjá má er listinn fjölbreyttur og skemmtilegur.
Eliza Reid, forsetafrú Íslands, kom, sá og sigraði þegar eiginmaður hennar, Guðni Th. Jóhannesson varð forseti Íslands. Embætti eiginmannsins hefur haft mikil áhrif á fatastíl Elizu, sem hefur með tímanum orðið ein best klædda kona Íslands. Hún á orðið mjög gott safn sparifata sem nýtast vel við störf forsetafrúarinnar.
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir búningahönnuður hefur lengi verið talin ein best klædda kona Íslands. Tóta eins og hún er kölluð hefur sinn frumlega og einstaka fatastíl.
Erla Þórarinsdóttir listakona þykir hafa vandaðan og fallegan fatastíl.
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, framkvæmdastjóri FKA, er alltaf eins og klippt út úr tískublaði. Hrafnhildur er gjarnan í hvítum jökkum eða ljósbleikum en þessir tveir litir fara hennar dökku augum og dökka hári mjög vel.
Katrín Jakobsdóttir „Hún er smart, eðlileg og svona effortless smart. Hún er greinilega fyrir danska Ecouture-merkið sem notar náttúrulega efni í hönnun sinni, svona samfélagslega ábyrgt hönnunarfyrirtæki. Hún blandar líka venjulegum og hönnunarfatnaði vel saman,“ segir einn af þeim sem tilnefndu hana.
Dóra Júlía Agnarsdóttir, plötusnúður hefur mesta glamour-stílinn af þeim sem komast hér á lista. Hún er algerlega óttalaus þegar kemur að fatavali og fatasamsetningum og elskar skraut og svo toppar litla bleika Prada-taskan allt en Dóra Júlía notar hana mikið.
Brynja Dan Gunnarsdóttir, markaðsstjóri S4S og Ellingsen, er alltaf fallega klædd. Það er alveg sama hvort Brynja er í útivistarfötum eða sparidressum – alltaf er hún smart.
Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður hefur þennan lekkera áreynslulausa stíl og ber alltaf af hvar sem hún kemur.
Hrefna Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum, er einstaklega smekklega klædd alltaf. Svörtu gleraugun setja svip sinn á heildarmyndina.
Karitas Sveinsdóttir, hönnuður hjá HAF Studio, er alltaf eins og klippt út úr tískublaði. Hún er mikið í þröngum buxum og fallegum jökkum með flaksandi hár og sparibros. Er hægt að biðja um eitthvað meira?
Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, á vandaðan og góðan fataskáp.
Elísabet Gunnarsdóttir, bloggari á Trendnet, er alltaf klædd nýjustu tísku og leggur mikið upp úr því að vera alltaf fersk þegar kemur að tískunni.
Ragnhildur Gísladóttir, tónlistarmaður hefur alltaf þótt hafa áberandi fallegan stíl. Það er ekki hægt að segja að stíllinn sé látlaus því fataskápurinn minnir meira á búningasafn sem er svo heillandi.
Bára Hólmgeirsdóttir, fatahönnuður og eigandi Aftur, hefur einstakan fatastíl sem er svolítið hippalegur á köflum en á sama hátt er hann afslappaður.
Heiða Magnúsdóttir, fjárfestir hefur sérlega fallegan stíl. Á dögunum mætti hún í rauðri Chloé-dragt þegar Sigga Heimis opnaði sýningu í Ásmundarsal.
Andrea Magnúsdóttir, fatahönnuður og eigandi Andreu, hefur dömulegan og fallegan fatastíl. Hún elskar rauðan lit og leggur upp úr því að vera í stíl.
Þessar voru einnig nefndar:
Dýrfinna Torfadóttir
Steinunn Ósk hárgreiðslukona
Dagný Jónsdóttir, lögfræðingur hjá Landsvirkjun
Edda Andrésdóttir fréttaþulur.