Fatahönnuðurinn Alexander Wang sýndi haustlínu sína fyrir árið 2019 í New York um síðustu helgi. Eftir að stórar og miklar augabrúnir hafa verið áberandi undanfarið voru augabrúnir fyrirsæta Wang litaðar til þess að gera þær nær ósýnilegar.
Með því að lita augabrúnirnar í sama tón og húðlit fyrirsætanna náðu förðunarfræðingarnir á sýningunni fram þeim áhrifum sem þeir vildu. Í viðtali við Refinery29 segir aðalförðunarfræðngurinn á sýningunni að áhrifa tíunda áratugarins hafi gætt í hárgreiðslu og förðuninni.
Annar förðunarfræðingur á sýningunni benti á að með þessum hætti mætti opna augun og draga athygli að augum fyrirsætanna.