Raunveruleikaþáttastjarnan Kylie Jenner varð 21 árs á föstudaginn. Það var öllu tjaldað til hjá þeim systrum og klæddist Kylie tveimur mismunandi dressum um kvöldið. Þær systur Kylie, Kendall, Kourtney, Khloé og Kim fögnuðu á skemmtistað í Los Angeles ásamt móður sinni Kris. Kylie birti mynd af þeim mæðgum saman og skrifaði að þær væru allar 21 árs núna. Kylie er yngst sex systkina og því síðust til að verða 21 árs. Eins og margir vita mega Bandaríkjamenn ekki drekka fyrr en þeir eru orðnir 21 árs og því virðist áfengi hafa verið þema kvöldsins.
Kylie byrjaði kvöldið í bleikum kjól en skipti svo yfir í bleikan samfesting með Swarovski-steinum. Samfestingurinn var sérhannaður fyrir Kylie af tískuhönnuðinum LaBourjoisie. Hún litaði á sér hárið í tilefni kvöldsins og er hún nú með ljósa lokka.
Eins og Kylie á kyn til var afmælisveislan ekkert slor og lét hún gera barbí-eftirhermu af sér. Barbídúkkuútgáfan er klædd eins fötum og Kylie var í um kvöldið.