Sumartískan iðar af lífi og fjöri og í ár má gera allskonar sem ekki mátti gera áður. Eins og til dæmis að fara í gegnsæjan kjól yfir köflóttar buxur. Danska fatamerkið Baum und Pferdgarten er með ferlega mikið af flottum kjólum í sumartískunni í ár.
Í línunni er til dæmi doppóttur hálfgegnsær kjóll sem passar bæði með undirkjól og sokkabuxum eða bara hefðbundnum dragtarbuxum. Nú er tíminn til að leika sér og vera frjáls. Leyfa tískustraumum dagsins í dag að flæða og njóta þess að vera til.
Það er líka annað við þessa tísku. Hún er hlý í sumrinu sem er að svíkja okkur þessa dagana og kemur í veg fyrir að við króknum úr kulda.