Vera Wang undir áhrifum frá Handsmaid Tale

Línan frá Vera Wang í sumar er undir áhrifum frá …
Línan frá Vera Wang í sumar er undir áhrifum frá The Handsmaid Tale, Flestir eru sammála um að vel hafi tekist til hjá tískuhúsinu. Pinterest.

Tískuhönnuðurinn Vera Wang gerði sér lítið fyrir og las söguna um The Handsmaid Tale, horfði á sjónvarpsseríuna og túlkaði svo stöðu konunnar út frá sögunni. Þetta endurspeglast í sumarlínu tískuhússins fyrir árið 2018.

Fallegar klassískar línur frá Vera Wang.
Fallegar klassískar línur frá Vera Wang. Pinterest.

Bæling í bland við uppreisn

Flestir eru sammála að afraksturinn sé til fyrirmyndar. Að sambland efna og sniða sýni ákveðna bælingu í bland við uppreisn. Í staðinn fyrir hvítt, varð svart fyrir valinu. Líkt og verið sé að syrgja stöðu sem hafi verið en nú muni konan standa sterk eftir átök #metoo hreyfingarinnar. Örlítið bæld, en líka örlítið villt. Klár í bland við smá ósmartan eðallúxus.

Hér má sjá ákveðin áhrif sem minna á uppreisn í …
Hér má sjá ákveðin áhrif sem minna á uppreisn í bland við bælingu. Pinterest.

Nýjar hæðir

Línan sýnir í það minnsta að hönnuðurinn hefur tekið línuna sína í nýjar hæðir. Eitt er víst. Það verður erfitt að velja úr þessari línu skynsamlega marga eða fáa hluti.

Guðdómlegur kjóll úr sumarlínu Vera Wang. Það sem þykir óvenjulegt …
Guðdómlegur kjóll úr sumarlínu Vera Wang. Það sem þykir óvenjulegt er hversu mikið svart er í línunni fyrir sumarið. Pinterest.
Vel heppnuð sumarlína frá Vera Wang.
Vel heppnuð sumarlína frá Vera Wang. Pinterest.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál